Þeistareykir

Þeistareykir

Fréttir

Landsvirkjun kaupir hlut Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar og Orkuveitu Húsavíkur í Þeistareykjum ehf.


Eftir kaupin fer Landsvirkjun með allt hlutafé í Þeistareykjum ehf.
Landsvirkjun og Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Landsvirkjunar á 0,087% hlut félagsins í Þeistareykjum ehf.   Einnig hefur verið gengið frá samkomulagi við Orkuveitu Húsavíkur ohf. um kaup á 3,2% hlut þeirra í félaginu.  Fyrir hlutina greiddi Landsvirkjun samanlagt kr. 201.202.856,-. Eftir kaupin fer Landsvirkjun með allt hlutafé (100%) í Þeistareykjum ehf.

Lesa meira

Þeistareykir ehf. og Landsvirkjun undirrita samninga

Þeistareykir ehf. og Landsvirkjun undirrita samninga um ráðgjafar­þjónustu vegna fyrirhugaðra jarðhitavirkjana á Norðausturland

Samið við verkfræðistofurnar Mannvit hf. og Verkís hf. um útboðs- og lokahönnun Bjarnarflagsvirkjunar  og Þeistareykjavirkjunar.

Lesa meira

Vegagerð frá Húsavík að Þeistareykjum

Vegagerð á Þeistareykjum
Í sumar hefur verið unnið að vegagerð  á veginum frá Húsavík að Þeistareykjum.  Nýr vegur hefur verið  lagður frá Höfuðreiðarmúla að Þeistareykjum samtals um 11,2 km.  Framkvæmdir við þennan veghluta standa enn yfir og eru verklok áætluð í lok október.   Reykjaheiðarvegur hefur einnig verið byggður upp  á um 4 km kafla við Höskuldsvatn nú í sumar og þessa stundina  er unnið að lagfæringum á vegi rétt ofan Húsavíkur. 

Rannsóknaboranir á Þeistareykjum

Borun ÞG-08, Lambafjöll í baksýn
Borun á fyrri holunni á Þeistareykjum er nú lokið. Holan er á austursvæði Þeistareykja, stefnuboruð um 2500 metra til norðausturs undir Ketilfjall. Nú er unnið að frágangi á holutoppi og ætti þeirri vinnu að ljúka í október og verður þá í kjölfarið hægt að setja holuna  í blástur.
Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf