Þeistareykir

Þeistareykir ehf. og Landsvirkjun undirrita samninga Vegagerð frá Húsavík að Þeistareykjum Rannsóknaboranir á Þeistareykjum Tvö tilboð bárust í

Fréttir

Þeistareykir ehf. og Landsvirkjun undirrita samninga

Þeistareykir ehf. og Landsvirkjun undirrita samninga um ráðgjafar­þjónustu vegna fyrirhugaðra jarðhitavirkjana á Norðausturland

Samið við verkfræðistofurnar Mannvit hf. og Verkís hf. um útboðs- og lokahönnun Bjarnarflagsvirkjunar  og Þeistareykjavirkjunar.

Lesa meira

Vegagerð frá Húsavík að Þeistareykjum

Vegagerð á Þeistareykjum
Í sumar hefur verið unnið að vegagerð  á veginum frá Húsavík að Þeistareykjum.  Nýr vegur hefur verið  lagður frá Höfuðreiðarmúla að Þeistareykjum samtals um 11,2 km.  Framkvæmdir við þennan veghluta standa enn yfir og eru verklok áætluð í lok október.   Reykjaheiðarvegur hefur einnig verið byggður upp  á um 4 km kafla við Höskuldsvatn nú í sumar og þessa stundina  er unnið að lagfæringum á vegi rétt ofan Húsavíkur. 

Rannsóknaboranir á Þeistareykjum

Borun ÞG-08, Lambafjöll í baksýn
Borun á fyrri holunni á Þeistareykjum er nú lokið. Holan er á austursvæði Þeistareykja, stefnuboruð um 2500 metra til norðausturs undir Ketilfjall. Nú er unnið að frágangi á holutoppi og ætti þeirri vinnu að ljúka í október og verður þá í kjölfarið hægt að setja holuna  í blástur.
Lesa meira

Tvö tilboð bárust í ráðgjafaþjónustu vegna fyrirhugaðra jarðhitavirkjana á Norðausturlandi

Á myndinni eru (frá hægri): Einar Mathiesen stjórnarformaður Þeistareykja, Árni Gunnarsson yfirverkefnisstjóri LVP, Pétur Pétursson innkaupastjóri LV, Jóhann Kröyer  LV, Óli Grétar Sveinsson LV við opnun tilboða

Tilboð voru opnuð klukkan 14:00 í dag í ráðgjafaþjónustu vegna fyrirhugaðra jarðhitavirkjana í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum, í húsakynnum Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík

Um er að ræða útboð sem felur í sér útboðshönnun,gerð útboðsgagna og endanleg hönnun vegna fyrirhugaðra framkvæmda við allt að 90 MW virkjun í Bjarnarflagi og 90 MW virkjun á Þeistareykjum ásamt aðstoð við eftirlit með uppsetningu vél- og rafbúnaðar. Landsvirkjun og Þeistareykir ehf. standa saman að útboðinu.

 

Lesa meira

Þeistareykjavegur nyrðri

Nú eru að hefjast framkvæmdir við Þeistareykjaveg nyrðri. Um er að ræða fyrsta áfanga vegarins eða 11,2 km langan kafla sem er allur nýbygging. Nyrðri mörk eru við Höfuðreiðarmúla og syðri mörkin eru nálægt fyrirhuguðu stöðvarhúsi um 1,5 km norðan við Þeistareykjaskála. Stærsti hluti þessarar vegagerðar er í Þingeyjarsveit, norðurhlutinn er í Norðurþingi.  Verktaki við þessa framkvæmd er Nesey ehf.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf