Þeistareykir

Uppskipun á Geysi í Húsavíkurhöfn Björgunarafreki á Reykjaheiði að ljúka. Margir björgunasveitarmenn við störf á Reykjaheiði í dag Smölun Reykjaheiðar

Fréttir

Uppskipun á Geysi í Húsavíkurhöfn

Húsavíkurhöfn
Þessa dagana er verið að skipa upp jarðbornum Geysi í Húsavíkurhöfn. Jarðboranir hafa undanfarna mánuði verið við boranir á Azoreyjum. Geysir verður fyrst fluttur í Kröflu þar sem hreinsa á eina borholu, um miðjan október verður borinn síðan fluttur á Þeistaeyki þar sem bora á tvær vinnsluholur í vetur.

Björgunarafreki á Reykjaheiði að ljúka.

Undir Jónsnípu siðdegis í dag

Smalamennska á Reykjaheiði er langt komin og vænta bændur þess að yfir 90 % fjár náist af heiðinni.  Björgunarsveitir hafa leikið stórt hlutverk í björgun fjár á Þeistareykjum og var fjöldi björgunarsveitarmanna enn að störfum núna siðdegis.  Nýr vegur og nýlegur sendir neyðarlínunnar á Ketilfjalli hafa einnig hjálpað bændum að ná fé sínu af fjalli eftir þetta mikla hret.


Margir björgunasveitarmenn við störf á Reykjaheiði í dag

Þeistareykjaskáli á Reykjaheiði

Margir Björgunarsveitarmenn voru á Reykjaheiði í dag við björgun fjár og gekk björgunin vel þrátt fyrir lítið skyggni og bleytu.  Mest þungi leitar á Reykjaheiði var á Þeistareykjalandi enda talið að um 4000 fjár hafi verið á því svæði fyrir hret.

 


Smölun Reykjaheiðar

Kindur og menn norðan Gæsafjalla
Vel gekk að smala Reykjaheiðina í dag enda margt um manninn. Vegurinn frá Húsavík upp á Þeistareyki og þaðan á Hólasand var mokaður í dag fyrir gangnamenn. Frekar lítill snjór er norðan Þeistareykja enn eykst verulega þegar sunnar dregur. Snjórinn á Hólasandi er með því mesta sem gerist og svipaður og um miðjan vetur (sjá myndir/2012). 

Neyðarástand á Reykjaheiði


Margir tugir björgunarsveitarmanna voru á leið á Þeistareyki nú í morgunsárið til að bjarga fé úr snjó á Reykjaheiði. Þeistareykir ehf létu moka leiðina nú í nótt og var greiðfært að Þeistareykjum nú kl. 8 í morgun. Snjóblásarinn bilaði við blástur suður frá Þeistareykjum og stendur viðgerð nú yfir og verður aftur byrjað að blasa um hádegi.  Snjór í næsta nágrenni við Þeistareyki er um 30 cm þykkur að jafnaði og víða 1-2 m djúpir skaflar. Veður er nú gott á leitarsvæðinu enn skafrenningur er sunnan  Þeistareykja.  Þessi björgunaraðgerð hefði verið illmöguleg fyrir 2-3 árum þar sem á þeim tíma voru eingöngu niðurgrafnir vegir sem mjög erfitt hefði verið að opna með svona skömmum fyrirvara

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf