fimmtudagur 24.september 2009
Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík,
Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í
Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.
Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 eru framkvæmdirnar háðar sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum,
í samræmi við 2. mgr. 5. greinar í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matið nær til fjögurra ofangreindra
framkvæmda.
Tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna fjögurra var skilað inn til Skipulagsstofnunar 23. september samhliða nýjum tillögum að matsáætlunum fyrir Þeistareykjavirkjun og Kröfluvirkjun II. Skipulagsstofnun hefur þegar fallist á matsáætlun Landsnets fyrir háspennulínur að Bakka og matsáætlun Alcoa fyrir álver á Bakka.
Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 í Reykjavík.
Hægt er að nálgast tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat hér á síðunni.
Tillaga að matsáætlun sameiginlega matsins
Einnig eru tenglar inn á heimasíður viðkomandi fyrirtækja þar sem nálgast má matsáætlanir fyrir framkvæmdirnar fjórar.
Álver Alcoa á Bakka
Kröfluvirkjun II
Háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík