Þeistareykir

Borun að hefjast á Þeistareykjum eftir þriggja ára hlé Starfsmenn Jarðborana hf. hafa undanfarna daga unnið að uppsetningu á jarðbornum Óðni á

Borun að hefjast á Þeistareykjum eftir þriggja ára hlé

Borinn Óðinn undir Ketilfjalli
Borinn Óðinn undir Ketilfjalli
Starfsmenn Jarðborana hf. hafa undanfarna daga unnið að uppsetningu á jarðbornum Óðni á Þeistareykjum. Í ár verða boraðar tvær 2000-2500 m. djúpar rannsóknarholur á Þeistareykjum sem hafa þann tilgang annarsvegar að kanna jarðhitageyminn undir Ketilfjalli á austurhluta svæðisins og hinsvegar undir Stórahver á vesturhluta svæðisins.  Áætlaður framkvæmdatími borframkvæmda er um 3 mánuðir og munu um 30-40  manns  koma að verkefninu.  Nú þegar hafa verið boraðar sex borholur á Þeistareykjum sem duga til framleiðslu 45 MW rafafls.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf