Þeistareykir

Flutningur hafin á jarðbornum Tý norður í Þingeyjarsýslu Öflugasta bortæki landsins, jarðborinn Týr í eigu Jarðborana hf, er á leiðinni í Þingeyjarsýslur.

Flutningur hafin á jarðbornum Tý norður í Þingeyjarsýslu

Öflugasta bortæki landsins, jarðborinn Týr í eigu Jarðborana hf, er á leiðinni í Þingeyjarsýslur. Fyrsta verkefni borsins er borun allt að 4,5 km. djúprar rannsóknarholu í Kröflu sem hefur þann tilgang að kanna vinnslugetu háhitasvæðisins á meira dýpi en áður hefur þekkst hérlendis.    Holan er fyrsta rannsóknarholan af þremur í íslenska djúpborunarverkefninu og er á margan átt einstök á heimsvísu.  Djúpborunarholan var boruð niður á um 800 m dýpi á síðasta ári en nú er stefnt að því að bora niður á allt að 4500 m dýpi, taka borkjarna, vökvasýni og stunda ýmsar aðrar rannsóknir á leiðinni.  Áætlað er að verkið standa frá miðjum marsmánuði og fram í júní.  Ef niðurstöður boranna reynast  árangursríkar gæti mat á vinnslugetu íslenskra jarðhitasvæða aukist til muna.
Einnig verður farið í lagfæringu á einni holu í nágrenni við Kröflustöð og hugsanlega verða boraðar 1-2 nýjar rannsóknarholur, sem ekki hafa verið staðsettar endanlega. 
Á síðustu árum hafa verið boraðar 8-10 rannsóknarholur árlega á NA-landi og er þetta því verulegur samdráttur í fjölda borverka fyrir norðan.
Heildarkostnaður við boranir ársins verða hinsvegar á bilinu 1-2 milljarðar sem er svipuð upphæð og varið hefur verið til borana á NA- landi á síðustu árum.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf