Þeistareykir

Mat á umhverfisáhrifum Þeistareykjavirkjunar  Drög að tillögu að matsáætlun Þeistareykir ehf. áforma að reisa allt að 200 MWe jarðhitavirkjun á

Mat á umhverfisáhrifum Þeistareykjavirkjunar

 Drög að tillögu að matsáætlun

Þeistareykir ehf. áforma að reisa allt að 200 MWe jarðhitavirkjun á Þeistareykjum í Þingeyjarsveit og Norðurþingi, í Þingeyjarsýslu.

Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matsvinnan er hafin og má nálgast drög að tillögu að matsáætlun hér á síðunni. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum. Þeistareykir ehf. höfðu áður lagt fram tillögu að matsáætlun fyrir allt að 150 MWe virkjun, sem var dregin til baka 6. nóvember 2008.

Allir hafa rétt til að kynna sér drög að tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum á neðangreint póstfang eða með tölvupósti á netföngin albert@lvp.is og audur@mannvit.is. 

Landsvirkjun

b.t. Alberts Guðmundssonar

Háaleitisbraut 68

103 Reykjavík

Sækja drög að tillögu að matsáætlun - há upplausn (6MB)
Sækja drög að tillögu að matsáætlun - lág upplausn (400 KB)

Frestur til að gera athugasemdir er til 6. mars 2009.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf