Þeistareykir

Mat á umhverfisáhrifum Þeistareykjavirkjunar Tillaga að matsáætlun Þeistareykir ehf. áforma að reisa allt að

Mat á umhverfisáhrifum Þeistareykjavirkjunar

Tillaga að matsáætlun

Þeistareykir ehf. áforma að reisa allt að 200 MWe jarðhitavirkjun á Þeistareykjum í Þingeyjarsveit og Norðurþingi, í Þingeyjarsýslu.

Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matsvinnan er hafin og má nálgast tillögu að matsáætlun hér á síðunni. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.

Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir til Skipulagsstofnunar.

Sækja tillögu að matsáætlun - september 2009

Frestur til að gera athugasemdir er til 9. október 2009.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf