Þeistareykir

Rannsóknaboranir á Þeistareykjum Borun á fyrri holunni á Þeistareykjum er nú lokið. Holan er á austursvæði Þeistareykja, stefnuboruð um 2500 metra til

Rannsóknaboranir á Þeistareykjum

Borun ÞG-08, Lambafjöll í baksýn
Borun ÞG-08, Lambafjöll í baksýn
Borun á fyrri holunni á Þeistareykjum er nú lokið. Holan er á austursvæði Þeistareykja, stefnuboruð um 2500 metra til norðausturs undir Ketilfjall. Nú er unnið að frágangi á holutoppi og ætti þeirri vinnu að ljúka í október og verður þá í kjölfarið hægt að setja holuna  í blástur.
Borun á seinni holunni er þegar hafin og er holan staðsett rétt austan við Stórahver vestarlega á Þeistareykjasvæðinu. Holan verður stefnuboruð um 2500 metra. til vesturs djúpt undir Stórahver. Vesturhluti Þeistareykjasvæðisins er minna þekktur og er þetta fyrsta djúpa rannsóknarholan á svæðinu. Frumrannsóknir benda til jarðhita undir svæðinu og verður athyglisvert að sjá útkomu úr þessari fyrstu borholu á þessu svæði.  Dýpt holunnar er nú um 300 metrar. og er búist er við verklokum í byrjun nóvember.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf