Þeistareykir

Rannsóknarleyfi í Gjástykki gefið út Orkustofnun veitti í gær, þann 10. janúar 2011, Landsvirkjun leyfi til rannsókna á jarðhita, grunnvatni og efnisnámum

Rannsóknarleyfi í Gjástykki gefið út

Orkustofnun veitti í gær, þann 10. janúar 2011, Landsvirkjun leyfi til rannsókna á jarðhita, grunnvatni og efnisnámum í landi Norðurþings, Þeistareykja og Reykjahlíðar í Gjástykki.

Við undirbúning leyfisveitingarinnar var leitað umsagnar umhverfisráðuneytis, sem leitaði umsagnar Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar. Þá leitaði Orkustofnun einnig umsagnar sveitarfélaganna Norðurþings, Skútustaðarhrepps og Þingeyjarsveitar sem og Landeigenda Reykjahlíðar ehf.

Leyfið felur í sér heimild til rannsókna á jarðhita, grunnvatni og efnisnámum á rannsóknarsvæðinu, sem og almennra umhverfisrannsókna sem nauðsynlegar eru til að kanna áhrif hugsanlegrar nýtingar á umræddar auðlindir, í samræmi við rannsóknaráætlun leyfishafa.

Leyfið gildir frá 10. janúar 2011 til 31. desember 2013.
Leyfið felur ekki í sér heimild til nýtingar á jarðrænum auðlindum á rannsóknarsvæðinu. Komi til nýtingar þarf leyfishafi að sækja um sérstakt virkjunarleyfi og/eða nýtingarleyfi og ná samkomulagi við umráðahafa réttinda á svæðinu um endurgjald fyrir auðlindina eða afla sér eignarnámsheimildar.

Landsvæði það sem kallast Gjástykki nær frá Skútustaðahrepps í suðri norður að Kerlingahól í Kelduhverfi og þekur rýflega 110 km2 og er landsvæðið að mestu í Norðurþing. Samkvæmt niðurstöðu viðnámsmælinga er jarðhitasvæðið Gjástykki um 10 km2 að stærð og nær til þriggja sveitafélaga Norðurþings, Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Helstu náttúruperlur svæðisins eru við Sandmúlan rétt sunnan Gjástykkis, svæðið norðan Hituhóla og Hrauná suðvestan við Hrútafjöll. Við afmörkun orkuvinnslusvæða var reynt að forðast rask nálægt þessum náttúruperlum og varð samhljóða niðurstaða allra sveitafélagana á svæðinu að einungis mætti nýta til orkuvinnslu 2% (2 km2) af þessu víðfeðma svæði og hefur því stærsti hluti svæðisins verið friðlýstur í svæðisskipulagi.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf