Þeistareykir

Þeistareykir áforma fjárfestingar fyrir 700 milljónir króna í verkefnum á Þeistareykjum árið 2011 Samkvæmt fjárhagsáætlun Þeistareykja ehf. fyrir árið

Þeistareykir áforma fjárfestingar fyrir 700 milljónir króna í verkefnum á Þeistareykjum árið 2011

Samkvæmt fjárhagsáætlun Þeistareykja ehf. fyrir árið 2011 er áætlað að verja rúmlega 700 milljónum króna til áframhaldandi rannsókna og annars undirbúnings á Þeistareykjum. Þar er fyrirhugað að boruð verði ein rannsóknarhola, farið verði í verkefni tengd vegagerð og fjárfest verði í frágangi við borholur. Auknu fé verður einnig varið til ýmissa rannsókna og mælinga. Á Þeistareykjum er nú til reiðu orkugeta upp á um það bil 45 MW.

Aukin áhersla verður jafnframt lögð á markaðsstarf  á árinu 2011 sem meðal annars mun miða að því að ná samningum við viðskiptavini sem hafa áhuga á að byggja upp starfsemi á Norðausturlandi. Landsvirkjun annast sölu raforkunnar í umboði Þeistareykja ehf.

17. desember 2010



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf