Þeistareykir

Tvö tilboð bárust í ráðgjafaþjónustu vegna fyrirhugaðra jarðhitavirkjana á Norðausturlandi Tilboð voru opnuð klukkan 14:00 í dag í ráðgjafaþjónustu vegna

Tvö tilboð bárust í ráðgjafaþjónustu vegna fyrirhugaðra jarðhitavirkjana á Norðausturlandi

Á myndinni eru (frá hægri): Einar Mathiesen stjórnarformaður Þeistareykja, Árni Gunnarsson yfirverkefnisstjóri LVP, Pétur Pétursson innkaupastjóri LV, Jóhann Kröyer  LV, Óli Grétar Sveinsson LV við opnun tilboða
Á myndinni eru (frá hægri): Einar Mathiesen stjórnarformaður Þeistareykja, Árni Gunnarsson yfirverkefnisstjóri LVP, Pétur Pétursson innkaupastjóri LV, Jóhann Kröyer LV, Óli Grétar Sveinsson LV við opnun tilboða

Tilboð voru opnuð klukkan 14:00 í dag í ráðgjafaþjónustu vegna fyrirhugaðra jarðhitavirkjana í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum, í húsakynnum Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík

Um er að ræða útboð sem felur í sér útboðshönnun,gerð útboðsgagna og endanleg hönnun vegna fyrirhugaðra framkvæmda við allt að 90 MW virkjun í Bjarnarflagi og 90 MW virkjun á Þeistareykjum ásamt aðstoð við eftirlit með uppsetningu vél- og rafbúnaðar. Landsvirkjun og Þeistareykir ehf. standa saman að útboðinu.

 

Tilboðin voru opnuð og nöfn bjóðenda lesin upp af Landsvirkjun í heyranda hljóði í viðurvist fulltrúa bjóðenda, Landsvirkjunar og Þeistareykja ehf.

Tvö tilboð bárust frá þremur verkfræðistofum, annars vegar frá Mannviti ehf. og Verkís ehf. og hinsvegar frá Eflu ehf.

Tilboðin verða nú lögð fyrir matsnefnd sem metur hvort bjóðendur standist þær kröfur um hæfi sem gerðar voru í útboðsgögnum. Gert er ráð fyrir að liðið geti um þrjár vikur frá opnun tilboða þar til niðurstaða fæst í mati á hæfi bjóðenda. Að því loknu munu verðtilboð þeirra bjóðenda sem stóðust kröfur um hæfi verða opnuð og þau metin.  Stefnt er að því að niðurstaða útboðsins liggi fyrir í byrjun september

Útboðið var auglýst á evrópska efnahagssvæðinu og rann frestur til að skila inn tilboðum út þann 9. ágúst 2011.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf