Þeistareykir

Viðbrögð við áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Þeistareykjavirkjunar Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum

Viðbrögð við áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Þeistareykjavirkjunar

Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum Þeistareykjavirkjunar. Jafnframt var gefið álit um Kröfluvirkjun II, háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum, álver á Bakka við Húsavík og sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum allra þessara fjögurra framkvæmda.

Með áliti Skipulagsstofnunar er mikilvægur áfangi að baki vegna mögulegrar nýtingar á háhitasvæðum norðaustanlands. Álitið samræmist stefnu  Þeistareykja ehf, um að nýta orkulindir með sjálfbærum hætti til atvinnuuppbyggingar.

Þeistareykir ehf.  lagði fram til mats á umhverfisáhrifum  200 MW virkjun á Þeistareykjum á þeim grunni að það væri aflgeta sem svæðin gætu staðið undir á sjálfbæran hátt. Afstaða þessi er grundvölluð á mati ÍSOR frá árinu 2009. Hins vegar er ljóst að endanleg vinnslugeta fæst ekki staðfest fyrr en fyrir liggur reynsla á nýtingu svæðanna. 

Þeistareykir  leggur áherslu á að fyrirtækið mun eingöngu semja um sölu á orku hverju sinni sem hægt er að tryggja afhendingu á. Vegna þessa er ljóst að virkjanirnar verða byggðar í áföngum, miðað við vitneskju um sjálfbæra nýtingu. Mikilvægt er að væntanlegir kaupendur séu meðvitaðir um þá óvissu sem fylgir orkuöflun á jarðhitasvæðum.

Næstu skref af hálfu Þeistareykja ehf.  er að afla tilskilinna leyfa til að halda áfram rannsóknum á orkugetu svæðisins.

Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum Þeistareykjavirkjunnar,sjá hér.

Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka og tengdum orkuframkvæmdum, sjá hér.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf